Lærðu að elska þig

Hvað er Lærðu að elska þig þerapía?
Þerapían er sérhönnuð af Guðjörgu Ósk Friðriksdóttur til að þú lærir að elska sjálfa/n þig,
sjáir hversu mögnuð manneskja þú ert þegar þú tileinkar þér jákvæðara hugarfar og sjálfsmat.
Þú tengist betur sjálfri/sjálfum þér með aukinni meðvitund, sjálfsöryggi og hugrekki.
Þerapían byggist á 12 tímum í samtalsmeðferð. Hver tími er með verkefni og fróðleik sem feta
þig skrefi nær því stórkostlega lífi sem þér er ætlað að lifa.
Þerapían er örugg og áhugaverð leið til að skapa betra líf og líðan.
Fyrstu tímarnir eru hannaðir til að byggja þig upp, finna þína stórkostlegu eiginleika og allt
það sem er nú þegar innra með þér. Þú hrósar sjálfri þér og öðrum og setur athygli þína í það sem þú elskar í lífinu þínu.
Næstu tímar fara í djúpa sjálfskoðun á öllum þeim kennurum sem þú hefur í lífinu þínu,
hvernig allar aðstæður í lífinu þínu eru mættar til þess að hjálpa þér að skilja þig betur og hvernig þú getur lært af því. Þú lærir að fyrirgefa þér og tengist þakklætinu og innsæinu þínu.
Í lokin skoðum við hvert þig langar að stefna, hvaða viðhorf þú vilt móta og hvaða drauma
þú vilt að rætist til að þú getir lifað því lífi sem þig dreymir um.
Rétt eins og gangur tímans tökum við saman eitt skref í einu í þessu magnaða ferðalagi að
þeirri einstöku og stórkostlegu mannveru sem þú ert! Hver tími er með sérstakar áherslur, fróðleik, útskýringar og verkefni. Í hverjum tíma, eitt skref í einu öðlast þú fleiri verkfæri sem
efla þig, styrkja og koma þér nær kjarnanum þínum. Þú skilur betur hver þú ert, af hverju þú
ert eins og þú ert og hvernig þú getur skapað þá eiginleika sem þú kýst að hafa.
HÉR getur þú lesið meira um uppbyggingu hvers tíma.
Hvað læri ég í þerapíunni Lærðu að elska þig?
Þú lærir að standa með sjálfri/sjálfum þér. Setja mörk og velja aðeins það sem er þér fyrir bestu
og þú elskar að hafa í lífinu þínu. Framkoma þín gagnvart þér og þeim sem þú umgengst verður kærleiksríkari og auðveldari. Óttinn við höfnun og að særa aðra hverfur, framkoma þín verður fágaðri og einlægari. Meðvirkni og sjálfssvik hverfa og þú finnur hvernig þú nýtur lífsins betur.
Þú viðurkennir sjálfa/n þig eins og þú ert.
Að standa með sjálfum sér hefur jákvæð áhrif á alla í kringum mann.
Allir sem þú umgengst fara að bera meiri virðingu fyrir þér, samskiptin verða jákvæðari og auðveldari því þú verður sannari og heiðarlegri. Sjálfssvik er það sem við eigum erfiðast með
að sjá og viðurkenna. Þeir sem svíkja sjálfa/n sig svíkja allan heiminn og viðhalda svikum.
Allir sem hafa tilhneigingu til að svíkja tengja sig við þessa orku.
Sjálfsöryggið þitt eflist og þér finnst þú fullkomin/n eins og þú ert akkúrat núna.
Þú hættir að dæma sjálfa/n þig og aðra, rífa þig niður og gera lítið úr þér. Viðhorfin þín gagnvart
þér breytast mjög hratt til hins betra og sjálfsmatið þitt verður jákvæðara. Þau samtöl sem þú æfir þig í að eiga við sjálfa/n þig verða uppbyggilegri og hvetjandi og auka þar með sjálfsánægju og hamingju þína.
Í þerapíunni munt þú uppgötva þá einstöku eiginleika sem þú býrð yfir.
Þú æfir þig í að meta sjálfa/n þig meira og alla þá hæfileika sem þú hefur. Þú hefur allt sem þarf til að lifa því lífi sem þú óskar þér og meira en það. Loksins gerir þú þér grein fyrir því hversu dásamleg mannvera þú ert, hvers þú ert megnug/ur og hvað lífið getur verið stórfenglegt.
Þú færð nýja lífssýn og skilning
Það auðveldar þér að takast á við þau erfiðu mál/aðstæður sem koma upp í þínu lífi. Ekkert slær
þig útaf laginu lengur þar sem þú hefur styrk til að takast á við allt. Þú verður fær um að treysta á þig og þá staðreynd að lífið er alltaf eins og það á að vera. Það gerist ekkert í þínu lífi til þess eins
að meiða þig eða brjóta þig niður. Þú finnur hvernig innsæið þitt eykst og hjálpar þér að velja rétt hverju sinni. Þannig hefuru því eignast besta leiðbeinanda sem völ er á.
Þúsundir einstaklinga hafa farið í þerapíuna Lærðu að elska þig og þú getur lesið nokkrar umsagnir HÉR
.png)
Að elska sjálfa/n þig eins og þú ert, að elska alla sem þú átt að,
að elska þennan dag í dag og að elska öll tækifærin sem þú færð
í lífinu er stórfenglegasta tilfinning sem þú getur komist í og
er bara hér handa þér.
Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir
Gæti þerapían hjálpað mér?
Ertu oft þreytt/ur og orkulaus?
Geriru reglulega það sem þú elskar og kemur þér í gott skap?
Er fólk í lífi þínu sem þú átt óþægileg og erfið samskipti við?
Ertu oft kvíðin/n eða áhyggjufull/ur þó ekkert sérstakt sé að?
Ertu með verki eða óþægindi í líkamanum?
Værir þú að gera aðra hluti ef þú værir að láta drauma þína rætast?
Ertu full/ur tilhlökkunar fyrir morgundeginum?
Áttu auðvelt með að standa með sjálfri/sjálfum þér?
Ertu dómhörð/dómharður í garð þín og einnig annarra?
Áttu erfitt með að tjá líðan þína og samþykkja tilfinningar þínar?
Hættir þú við að gera eitthvað af því þér finnst þú ekki:
...líta nógu vel út ?
...passar ekki í hópinn ?
...ert ekki nógu góð/ur til að taka þátt ?
...finnst allir hinir betri, flottari eða klárari ?
…ert ekki á réttum aldri fyrir þetta ?
Eftir að hafa svarað þessum spurningum ættir þú að skilja hvort það er eitthvað sem þú myndir vilja breyta eða hafa öðruvísi í þínu lífi. Hugsanlega sérðu betur að þú ert lítið tengd/ur við þig og veist
ekkert hvað þú vilt. Þú gætir átt erfitt með að svara spurningunum sem er yfirleitt af því að þú
ert ótengd/ur sjálfri/sjálfum þér, stendur ekki með þér og gætir mögulega lært að elska þig meira.