top of page
Lærðu að elska þig

Halla Ósk Heiðmarsdóttir
1988 | SELFOSS | Maki | 1 barn
NÁM & REYNSLA:
-Reiki 1 heilun
-Little Flower Yoga 1 kennaranám.
-Kennararéttindi í þerapíunni Lærðu að elska þig
MÍN ÞJÓNUSTA:
-Einkatímar í gegnum netið í þerapíunni Lærðu að elska þig
MÍN SÉRHÆFING:
Ég hef mikinn áhuga á að aðstoða fólk við að finna fjársjóðinn innra með sér, takast á við erfiðar tilfinningar og vinna úr æskuárunum.
Ég hef persónulega reynslu af kvíða frá unga aldri og svo þunglyndi síðar. Ég er svo þakklát fyrir þá reynslu því hún hefur gert mér kleift til að skilja betur einstaklinga sem hafa farið í gegnum erfið tímabil og vanlíðan.
MÍN REYNSLA AF "Lærðu að elska þig" :
Þerapían gaf mér nýja sýn á lífið. Mér tókst í fyrsta sinn að sættast við og hreinlega þakka fyrir tilfinninganæmni mína.
Ég uppgötvaði nýjar hliðar og eiginleika hjá sjálfri mér, sem höfðu verið faldar undir kvíðanum og neikvæðum eiginleikum sem höfðu yfirtekið allt. Með hverjum tímanum opnaðist hjartað meira, ég sá og fór að meta fegurðina allt í kringum mig og hreinlega táraðist af þakklæti fyrir lífið mitt. Í dag er ég betri manneskja og móðir.
Að skilja mótunaráhrif æskuáranna er eitthvað sem er ómetanlegt þegar maður er að ala upp barn sem er að læra á tilfinningarnar sínar.
LÍFSGILDIN MÍN:
Kærleikur | Einlæg tjáning | Þakklæti
Blómstrandi
líf&ljósmyndun
hosk.is-Blómstrandi líf&ljósmyndun
hosk.is
Allt er eins og það á að vera
bottom of page



