top of page

Lærðu að elska þig

  • Birgitta Hrönn Halldórsdóttir
  • Jun 15, 2020
  • 5 min read

Heil og sæl, þó að örlítið sé liðið frá því að ég skirfaði þennan pistil langar mig að setja hann hér inn, því hvert orð sem hér stendur er enn í fullu gildi og ekki síður nú en þá.

Ég heiti Birgitta Hrönn Halldórsdóttir og er bóndi og rithöfundur og bý í Húnavatnssýslunni. Auk þess er ég reikimeistari og núna farin að kenna þerapíuna sem við erum að fjalla um.

Mig langar til að segja ykkur frá hvað hefur breyst í mínu lífi eftir að ég fór í þerapíuna “ Lærðu að elska þig”.

Í byrjun nóvember 2016 fór ég í fyrsta tímann hjá Ósk. Það hafði verið mælt mjög mikið með þessari konu við mig af vinkonu minni sem var byrjuð í þerapíunni dálitlu áður og hafði einnig hitt Ósk á Balí og heillaðist alveg af henni, útgeislun hennar og vinnu.

Ég upplifði mig á vondum stað á þessum tíma. Ég var verulega uppá kant við strákinn minn, samband okkar var algjörlega í molum og ég fann að ég var farin að hafa skoðanir og álit á því sem mér kom als ekki við. Venjulega hafði ég haft umburðarlyndi en þarna var hann farinn að ganga yfir öll mín mörk (sem ég greinilega leyfði) og ég var farin að hugsa leiðinlega til hans og segja hluti sem eru ekki venjulega til í minni orðabók. Hausinn á mér var fullur af bulli og ég var orðin verulega óánægð með sjálfa mig á öllum sviðum. Fannst ég ekki hafa stjórn, ekki vera að standa mig og var ekki að greina bullið í hausnum á mér frá því sem raunverulega var. Ég var að draga ákvarðanir sem ég vissi að ég yrði að taka og mér fannst ég bara, gömul, feit, ljót og glötuð. Ég vissi samt alveg að þetta var bara líðan og enginn gæti hjálpað mér úr henni nema ég. Ég var að hugsa um að fara til sálfræðings en þá mundi ég eftir Ósk og öllu hólinu sem vinkona mín hafði borið hana, svo ég hafði samband við hana, fékk tíma og lífið byrjaði að breytast.

Það var ofboðslega gott að fá þessa hjálp. Þarna var ókunnug kona, staðsett á Balí að skypa við mig og skoða lífið mitt á hlutlausan hátt. Ég fór að vinna undir hennar leiðsögn og strax eftir fyrsta tímann fann ég að þetta var lausnin fyrir mig. Ég fann strax leiðina að fallegu, sterku mér en ég var komin töluvert langt frá henni. Strax eftir fyrsta tímann lagaðist sambandið við strákinn minn og við erum bestu vinir í dag. Auðvitað heldur hann áfram að kenna mér á sinn fallega hátt en ég er sem betur fer búin að læra margt á þessum tíma svo að lífið hefur breyst mikið.

Strax og ég fór að vinna í því að elska mig, fann ég innri ró. Það var ekkert auðvelt að horfast í augu við margt af því sem var liðið, en ótrúlega hratt lagaðist lífið og það sem hafði valdið mér endalausum sárindum(þegar það poppaði upp) gerir það ekki lengur. Ég finn bara að mér koma hlutir ekki við og það er miklu auðveldara að vera í jafnvægi, setja sig í fyrsta sætið, elska sig og leyfa öðrum að vera það sem þeir velja.

Setningar eins og: Það sem þú segir um aðra ertu að segja um þig og þegar þú dæmir aðra ertu að dæma þig, hafa hjálpað mér mikið og ég æfi mig og æfi að halda orkunni uppi og nota meðvitundarkortið alla daga.

Ég var ekki búin að vera marga tíma í þerapíunni þegar ég gerði mér grein fyrir að mig langaði til að kenna hana. Mér finnst hún reyndar vera þannig að allir og ég meina ALLIR ættu að fara í gegnum hana. Vonandi fer hún inn í skólana, það væri gott. En ég var svo heppin að Ósk kom heim og ég komst þá á kennaranámskeið. Það eins og þerapían sjálf var mjög lærdómsríkt.

Þegar ég gerði verkefnið “Galdralíf” breyttist ofboðslega margt hjá mér. Þetta var frábær tími að sleppa huganum lausum, galdra endalaust og hugsa sér að maður gæti bara gert allt, unnið allt, ferðast allt, breytt öllu eftir sínu höfði. Niðurstaðan var gríðarlega góð tiltekt í eigin haus og ég komst að því að það sem ég raunverulega vil er flest inní mínu lífi og ætti ekki að vera óyfirstíganlegt að fá það sem uppá vantar . Góð niðurstaða. Ég er líka búin að komast að því að með þessari frábæru vinnu er auðvelt að breyta því sem maður vill breyta mjög hratt.

Það er svo margt sem ég skil í dag og er þakklát fyrir. Ég hef líka stygið skref sem voru nauðsynleg. En fyrst og fremst og það allra besta er að ég elska mig í dag það mikið að ég get staðið ein og óstudd fyrir mínu. Ég þarf ekki hækjur eða afsakanir. Ég veit hvað ég vil og hver ég er. Ég veit líka að ég kemst þangað sem ég vil. Ég veit líka að núna mun ég verða mun færari um að hjálpa öðrum, verða betri heilari/kennari og það sem ég skrifa og skapa fer á annað stig. Það verður ég og það sem ég elska. Ég geri mér samt alveg grein fyrir að ég þarf að halda áfram að halda mér við, komast lengra,læra meira, æfa mig og njóta þess að vera í núinu.

Með þerapíunni náði ég stjórn á lífinu mínu aftur, ég er farin að velja það sem MIG langar og leyfi ekki öðrum að sýna mér virðingarleysi eins og ég gerði. Ég skil í dag að aðrir munu ekki koma fram við mig á annan hátt en ég geri sjálf. Til að aðrir virði mig þarf ég að virða mig sjálf. Til að aðrir elski mig þarf ég að elska mig sjálf og til að aðrir hlusti á mig þarf ég að hlusta á mig sjálf. Stundum hef ég verið hrædd við breytingar og verið hrædd um að vera yfirgefin, nú fagna ég breytingum og veit að ég þarf ekki að vera hrædd við höfnun, einmanaleika eða annað slíkt, nema ef ég dett í þá gryfju að gera það sjálf. Ég vel að standa með mér, taka ábyrgð á mér og elska mig. Ég hlakka ekkert smá til að vinna með þessa þerapíu í framtíðinni.

Ég er nóg

Ég er þess virði

Ég á skilið

Ég get

Ég er afar þakklát fyrir hjálpina frá Ósk, fyrir þerapíuna og fyrir sjálfa mig að hafa staðið upp og ákveðið að elska mig. Ég veit að ég á eftir að fá að vinna með fólk um langa hríð, bæði í gengum “Lærðu að elska þig” og reikiheilun. Ég veit líka að reikinámskeiðin mín verða betri með betri líðan minni þó að reiki sé eins og þessi þerapía, lúti alheimslögmálum og standi algerlega eitt og sér, fullkomið. Það er mikil hamingja fyrir mig að hafa þessi dásamlegu tæki í mínu lífi.

En þó að margt hafi breyst í mínu lífi þá er margt sem ég ætla að breyta fleira og ég hlakka til að takast á við það. Hlakka til að skapa allt það sem mig langar og njóta þess sem mig langar að njóta. Ég er staðráðin í að gera bara það sem ég elska og hlusta alltaf á innsæið mitt. Þær æfingar hafa gert mér mjög gott.

Ég hlakka til að endurskrifa reikiglósurnar mínar með hliðsjón af því hvernig mér líður í dag. Hlakka til að skrifa efni á andlegum nótum og hlakka til að segja fólki frá minni upplifun og hvað það er í lífinu sem hefur hjálpað mér að komast þangað sem ég vil. Lífið er dásamlegt og svo margt að hlakka til. Ég lærði að elska mig og mig langar að kenna öðrum að læra að elska sig. Ég lærði að heila mig og ég vil einnig kenna öðrum að heila sig. Að heila sig með því að elska sig er fullkomið. Kæru þið sem lesið þetta gefið ykkur gjöf. Lærið að elska ykkur sjálf.

Comments


Fylgdu okkur á facebook 

bottom of page